verkefnið mitt (amerískt ;) Fyrst það eru svona margir að skrifa um verkefnið sitt í skúrnum þá atla ég að
Deila með ykkur mínu.
Þegar að ég var 16 ára. Þá átti afi minn gamlan bíl sem hann var að selja
Plymouth belvedere “66 hard top tveggja dyra. Og mig langaði mikið í hann.mjög mikið.
Svo þegar ég var alveg að verða 17 þá frétti ég að einhver gaur hefði boðið í bílinn
Og ég hringdi eins og skot í afa og dílaði við hann. Og hann seldi mér bílinn á helmingi lærra verði en boðið hafði verið. Svo stóð bíllinn úti í sveit í ár. Áður en að ég naði í hann. Ég fór bíladaga helgina 2002 norður og keyrðann suður. Vá það var
Sko alvöru tilfinning að rúnta suður á 36 ára amerískum kagga. Rokkurinn var reyndar ekki nema 318,. Svo fór sumarið í að
Rúnta, spóla og misþyrma greyinu. Svo þegar sumarið var á enda var honum hennt í geymslu með dána skiptingu, og byrjað að tæta hann niður, því þegar að maður hefur ekki reynslu á að gera upp bíl, þá heldur maður að þetta sé ekkert mál og ég hélt það
Þannig að ég atlaði að hafa hann tilbúinn fyrir næsta sumar og nú er nákvæmlega ár liðið og allt er að gerast fyrir alvöru núna. Núna er ég byrjaður að versla í hann hægt og rólega eins og tekjur leifa. Og loksins er hann að fara úr geymsluni sem hann var í og heim til mín inn í skúr þar sem hann verður tættur sundur. Ég atla samt ekki að taka hann í frumparta. Bara riðhreinsa boddy og sprauta. Grindin er góð. Ég var að koma frá því að gera allt klárt fyrir nýja skiptingu sem er 727. svo tók ég 265 dekkin undan því þau voru orðin bara vírar, og setti 215 undir, svolítið kjánalegt að sjá hann á svona horuðum dekkjum.
Ég er búinn að fjarlægja allt plussið sem að var inni í honum /var rautt pluss.
Og atla að setja eithvað almennilegt í staðinn.
Svo er ætlunin að fá sér nýjar felgur og þá almennileg dekk á þær, í breiðari kantinum.
12bolta hásingu. Og svo væri líka rosalega gamann að fá sér 440 og eithvað snirtilegt sílsapúst. Bíllinn er rauður með gráa rönd á hliðunum og glimmeri, ég sprauta hann sennilega aftur þannig og sleppi glimmeri.. og þegar þetta er komið þá verð ég alveg voða voða sáttur. Ég er að vona að það eigi eftir að fara svona ár í þetta í viðbót, þó svo að ég ætli ekki að gera neinar tímaáætlanir.
mynd af samskonar bíl, bara gtx..

http://cgi.ebay.com/ebaymotors/ws/eBayISAPI.dll?Vie wItem&item=2441559393

Svo er ég líka á mjög skemtilegum bíl til að nota dags daglega. Blár amc gremlin “77
3 gíra beinskiptur 4,2