Ég er búinn að vera að fylgjast með svörum við greininni um GullBoruna (þetta hljómar eins og verðlaun veitt fyrir hommaklám!) og finnst þetta mál vera miður!

Ég veit að ég hef gaman af því að rakka niður bíla sem mér líkar ekki en er þetta ekki full gróft þegar verið er að pósta myndum af bílum út í bæ. Þetta væri kannski ekki vandamál ef sumir gerðu síðan ekki annað en að pósta svör sem eru ekkert nema persónulegar árásir á eiganda bílsins sem um er að ræða. Ég læt vera að gera grín að bílnum en þegar farið er að saka eiganda bílsins um að eiga í kynferðislegu sambandi við ferfætlinga erum við komnir út fyrir allan málefnalegan grundvöll!

Ég held að það sé alvarlegur skortur á mannasiðum og kurteisi hjá sumum aðilum á þessum annars ágæta vettvangi.