Filmstjarna? Bíladellumenn sem horfa eitthvað á tónlistarmyndbönd hafa örugglega tekið eftir (og slefað yfir) Bentley Azure sem hefur birst í að því er virðist fjölmörgum myndböndum.

Hvort um einn og sama bílinn er að ræða veit ég ekki en þætti gaman að komast að því. Myndböndin sem ég hef komið auga á gripinn í eru: Thong Song með Sisqo, Rollin' með Limp Bizkit og Southside með Moby og Gwen Stefani. Í öllum tilfellum silfurgrár Bentley Azure! Ef einhver veit hvort þetta er einn og sami bíllinn endilega látið í ykkur heyra!

Ég læt fljóta með mynd af samskonar bíl. Ef það þarf að vera fleki, þá verður það að vera Bentley! Og ef einhver þarfnast áminningar: 6.75l V8, Garret turbocharger, 400 HP, 600(!) lb/ft, 2419 kg(!) og 6.3 sek í 60 mph. Það er gott að vera ríkur.