Kæru Fortress.is adminar,

Þetta er þakkarbréf til ykkar, fyrir að brjóta blað í íslensku BF serveramenningunni. Núna er loksins kominn server með lágu pingi sem er ekki alltaf að reloada möpp (sem tekur sko tíma) og þessi “self inflicting TK damage” er algjör snilld. Hver ofurþrjóskur teamkiller verður þreyttur á að deyja á mest 2 mínútum. Mér finnst 3 round á map bara mjög hæfilegt. Og gott að vera laus við þessa bottavitleysu sem var áður að skemma serverinn.
Ég varð vitni að því í gær þegar enn eitt TK smartassið plantaði sprengjum við flugvélar og sprengdi þegar teammates ætluðu í loftið. Hann faldi sig bak við hæð en var greinilega ekki að fatta hver það var sem drap hann þegar hann dó líka. Reyndi þetta tvisvar og alltaf kom “dickhead is no more”. Stuttu seinna var það “dickhead has disconnected”. Mission successful.


Takk fyrir frábærann server! Keep it up!

Kveðja,
DrDeath

PS: svo ef í framtíðinni væri hægt að stækka upp í 32 eða 40 manna server með lágu pingi þá væri það snilldin ein.
__________