Halló allir.
Jæja þá er maður loks kominn með leikinn og getur byrjað að stúdera þennan snilldar leik. En ég verð að segja að það er miklu betra að spila þetta við bota eða á útlendskum server, þau fáu skipti sem ég hef verið að spila á símneti þá er ALLTAF einhver sem stundar það að Teamkilla. Ég spyr, er ekki hægt að vota þessa HÁLVITA út?? bara einhvern veginn losa sig við þessi börn. Ef það er eitthvað sem er pirrandi þá er það nokkur ónýt epli í körfunni. Eru ekki adminar að fylgjast með þessu?
Með von um batnandi spilamensku.
Kv Maxx
“If there's one thing you can say about Mankind