Þegar maður er í einhverjum borðum með svona repairzone eða hvað sem þetta nú heitir eru ótrúlega margir sem eru þar á skriðdrekum. Þetta getur verið mjög pirrandi t.d. í Gazala þegar maður er Þjóðverji geta sumir gaura komist inn í flugskýlið. Þar eru þeir bara campandi og drepa mann um leið og maður fer í flugvélarnar. Þetta finnst mér vera svona hálfgert svindl því svo þarf allt liðið til að hjálpast að að rústa einum tank. Mjög margir eru mér sammála um að kicka svona gaurum útaf serverinum því maður getur ekkert verið í flugvélum í skemmtilegu flugvélaborði. Það er allt í lagi samt að vera á svona repairzone þar sem tanks birtast en ekki inn í eins og ég sagði flugskýlinu. Þar sér maður alla sem koma inn og drepur þá strax. Maður er að reyna að tanka þá en þeir bara skjóta mann og sprengja og repairast svo bara aftur. Ég sá t.d. einu sinni sherman (sem var inni í flugskýlinu) rústa tiger… Ég er algjörlega á móti þessu og vona að þið hafið ykkar álit á þessu.

eXXoN