Hvað er málið með það að fólk sé að ráðast inní í óvinastöðvar, það er að segja fánann sem ekki er hægt að kappa, og hanga þar, drepandi alla þá sem spawnast og eru enn að átta sig á því að þeir séu lifandi!!

Þettta er hið versta SPAWNKAMP!! og svo afsaka þeir sig mieð því að þeir séu búnnir að kappa öll hin flöggin! Einsog það sé einhver réttlæting á SPAWNKAMPI?!

NEI!! það er sko alldeilis ekki. Þetta er hinn versti þursaskapur og getur bara útskýrst á þann hátt að hér séu bjánar á ferð sem bera enga virðingu fyrir náunganum og skemntana gildi leiksins.

Ég skil allveg “spawnkamp” hjá flöggum sem þú getur kappað því þar ertu með það takmark að ná því svæði og fólkið sem er að verja það svæði eða spawnar þar er greinila ljón á vegi þínum til landvinninga EN þegar 3 skriðdrekar og veit ekki hvað mikið af fótgönguliði eru í kringum flagg sem þeir geta EKKI KAPPAÐ þá verð ég meira en lítið pirraður og vil helst snúa mér aftur að heiðursmanna sportinu DoD þar sem meiri partur leikmanna er með dálitla siðferðiskennd og nógu mikinn sóma til þess að fatta að meðan þeir skemmta sér konunglega við þá plebbalegu iðn að spawnkampa, þá erum við hinir sem erum hinum meginn við breiðbandið ekki allveg á sama máli.

Svo ég segi TeamKillum ALLA spawnkampara og látum andstæðing vita ef það er verið að spawnkampa þig svo að þeir geti TKað þursanna í sínu liði.

Gegn RANGLÆTI með OFBELDI!!

Gunsalot hefur tjáð sig.<br><br>Dod : [-=HB=-]Gunsalot
Cs : MiP-Gunsalot
bf : [RAF]Gunsalot
Dod : [-=HB=-]Gunsalot