Verð að lýsa yfir hneykslun minni á sumu fólki…
Þvílík endemis frekja í fólki sem dregur mann niður í vont skap.

Var að spila áðan…og þessi gaur, “Að leika mer” hoppar uppí Artillery við hliðina á mér, og ég stekk þá uppí það líka, til að manna byssuna…
Gaurinn stoppar, og segir hreinlega “út”. Ég spyr af hverju, og hann segir að þetta sé sitt Artillery. Ég segi honum að þetta sé nú teamplay leikur og það sé frekar ætlast til þess að einn stýri og annar manni byssuna…
En ég fæ þetta svar:
“ÉG VIL SKJÓTA”

Ég nennti ekki að spila meira eftir þetta…er fólk virkilega svona barnalegt, og leiðinlegt? Að það hunsi gjörsamlega orðið “teamwork”, því “það vill skjóta”?

Ég myndi vinsamlega biðja svona smákrakkafjára að fara aftur í Counter-Strike.<br><br>———————-
<i>Insanity is an art, not a sickness.</i>

They say that sneezing is the closest thing to get to an orgasm, and I agree…I do both into my hanky…

<i>It's amazing what one can accomplish when one doesn't know what one can't do. -Garfield</i