Ég er alltaf að lenda í því að ég detti út af serverum, sama hvaða server ég er á. Hef ekki fundið neitt með google varðandi þetta vandamál.

Pingið fer upp og ég disconnectast af serverinum, með reglulegu millibili (c.a. 20 - 30 min). Gerist hvar sem er í leiknum. get sjaldnast spilað heilann leik.

Þetta er orðið virkilega pirrandi… Ég veit að þetta er ekki tölvan afþví ég fór með hana til vinar míns og þar gekk þetta eins og í sögu.

Ég er með venjulega adsl tengingu hjá Símanum.

þetta er búið að vera svona í c.a. 3 mánuði (alveg frá því ég spilaði BC2 fyrst á þessari tengingu.

Eru einhver port sem ég þarf að opna eða?
Arguing on the internet is like running the special olimpics…