Ætlaði að tékka hvort einhver kannaðist við eftirfarandi vandamál.

Eftir að ég installa demoinu þá fæ ég error message þegar installið er búið: “Unable to find installed language” eða eitthvað álíka og í kjölfarið kemur þetta: “BF2142 Voice setup. Could not read localization data, defaulting to English ”

En svo fæ ég gluggann til að klára installation dæmið, smelli bara og finish og er klár í slaginn.

Þegar ég ætla svo að keyra leikinn fæ ég villu sem segir að hugsanlega geti ég lagað það með reinstalli. Búinn að prófa það, fæ sama shittið aftur.

Ég er með glænýja tölvu, 512mb geforce skjákort og allan pakkann. Hún á alveg að ráða við leikinn, virðist bara ekki finna eitthvað language. Þess vegna þori ég ekki að kaupa leikinn ef hann skyldi ekki virka. Ætli íslenskan sé eitthvað að valda þessu vandamáli?