Búinn að vera að spila þennan leik í næstum viku og hann batnar bara með hverri spilun. Ég hef lítið spilað af eldri BF leikjunum en samt eitthvað að LAN-ast í gegnum tíðina, en aldrei náð mér á flug í þessu. En núna er ég að fatta þetta loksins, t.d. hvernig hægt er að raka inn stigum með því að berjast þar sem squad leaderinn sendir mann og ef squad leaderinn er lélegur, þá bara búa til squad og bjóða fólki í það og nota “T” takkan stanslaust til að búa til nýjar skipanir.
Endilega, þið sem eruð að spila, joinið squads í leiknum og byrjið að raka inn punktum eða lærið að vera squad leader, mæli sterklega með því :)