Ég las að það væri nýr BF leikur á leiðinn og líka að hann yrði gerður á sömu vél og BF2.
Ég var að hugsa, varðandi modin, þá aðallega Forgotten Hope, því ég nenni varla að vera að standa í einhverju framtíðar rugli. Það sem ég var að hugsa er, verður mikið mál að gera nýtt FH mod fyrir 2142 þar sem að leikurinn er gerður á sömu vél og BF2? Er ekki bara hægt að nota allt sem búið verður að gera fyrir FH2 og forrita það fyrir BF 2142 á stuttum tíma? Eða þarf að gera modið allt upp á nýtt?
/Kv. Snjólfurinn