Nú er ég svo aldeilis gáttaður. Í fyrsta sinn á ævinni get ég ekki á eigin fótum fundið þá plástra sem á að finna eða öllu heldur í hvaða röð.

Ég var að fá mér BF2:SF en átti áður BF2 Orginal og spyr því hér með um hjálp í þessum efnum. Var við að endursetja upp leikinn þannig að ég hef ekki sett upp neina plástra eins og er.

Er einhver hérna sem getur í fáum orðum bent á þá plástra sem ég þarf og í hvaða röð ?