Ég er bara nýbyrjaður og ég fíla þennan leik í tætlur fyrir utan nokkur stór smáatriði.

Þessi leikur er ömulegur, á milli þess sem maður er að spila. Geðveikt mikið mál að koma patch 1.03 inn svo dæmi skuli taka.

Einnig málið með account, það er bara rugl. Hjá mér er account name Hnussi, en þegar ég fer á server stendur að ég heiti Hnussi Hnussi. Mjög sniðugt… (örugglega samt til einhver auðveld lausn á þessu)

Annað er síðan að Loading time á milli mapa er hræðilegt. Langur tími sem fer í það.

Svo er leikurinn einnig mjög duglegur að crasha hjá mér svo það eykur ekki gildi leiksins.

En þrátt fyrir þetta allt, er mjög gaman að spila þennan leik. Dýrka öll farartækin og gaman að spila þessa mismunandi classa.
Fullur Íslendingur og aðrur Íslendingur