Sælir BF 2 bræður.

Ég hef verið að velta fyrir mér hvaða patch þetta er sem er nýkominn. Finnst skrítið hvað hann kom out of the blue.

Ég er búinn að vera að skoða korka hérna um þetta en oft kemur bara eitthvað bull fram.
Ég hef hvergi séð út af hverju hann kom og til hvers.

En svo sá ég að ég kemst ekki inn á fullt af serverum lengur.

Tvær spurningar.

Er þessi patch fyrir Special Forces útgáfuna eða bara fyrir BF2 sjálfan leikinn?

Og ef ég fæ mér Special Forces í dag, hvernig gengur það fyrir sig. Á BF2 leikurinn og patcharnir eftir að fokkast upp þegar ég set SF inn?

Og ef ykkur finnst þetta heimskulegar spurningar þá afsaka ég, en ég þarf samt að vita þetta.

Svo væri geggjað ef einhver myndi koma með einhvern fróðleik varðandi install á Special Forces og einnig varðandi þennan nýja patch.

Því miðað við fyrrverandi patcha þá fer allt í rugl þannig að ég vill hafa varann á og gera þetta rétt í byrjun.

Þakka fyrir mig

Kv. Big_Fat_Panda