Þannig standa málin að ég spila yfirleitt á server sem spilar Strike at Karkand í 16 manna mappi og er með 64 inná. Hann er yfirleitt alltaf fullur. Það gerir það að verkum að leikmenn eru mjög þétt hver upp við annan.

Ég var eitt sinn hjá Hotel outpostinum og það var verið að taka hann yfir af nokkrum óvinum. Að sjálfsögðu tók ég upp handsprengju og kastaði. Ég kastaði reyndar aðeins of stutt sem leiddi til þess að ég drap 3 félaga. Seinna í sama leik gerðist svipaður atburður og ég drap 2. Þá var ég bannaður samstundis þrátt fyrir að vera hæstur á servernum. Hvernig kemst ég inn á þennan server aftur, eða kemst ég ekki inn á hann aftur?