Kært fólk ég var að spila inn á server núna klukkan 15:20 og í gúddí fíling í wake 2007. Þá allt í einu er skipt um map?! Þetta round var nýbyrjað fyrir um 2 mínútum síðan. Það var ENGINN inn á servernum spurður “á ég að skipa um map?” eða “viljiði að ég skipti um map?” það var allavega einn ice. gaur þarna inná sem er væntanlega með rcon, allavega hann er sá eini sem mér dettur í hug að hafi gert þetta.

Af hverju mega rconar og adminar ganga yfir allt og alla og skipta bara um map þegar þeim SÝNIST! Ég veit að þessi póstur ætti að vera á btnet korkunum, en ég veit alveg að allir þessir ice gaurar eru með user á huga.

Ég meina það af hverju þarf að þróa þetta í sama far og í gamla 1942? Þá meina ég að ice clanið ráði öllu á serverunum og skipta bara um möp þegar þeim sýnist. Ég hef ítrekað spurt stjána um rcon, 2 á msn og með hugapósti, en hann greinilega leggst ekki svo lágt að svara manni.

Ef þið hugsið aðeins í því af hverju ekki að skipta rcon á þessi “reyndu klön” t.d. að hvert clan mundi þá fá 2 rcona? Þessi póstur verður eflaust skotin í kaf þar sem að heildin þarf víst að rísa upp á móti stjórninni til að eitthvað gerist. Þá spyr ég bara: Viljið þið láta rcon/admin abuse láta yfir ykkur ganga. Já hinir náðu ekki öllum flöggunum í wake þar sem ég var í China og var enn sprelllifandi við eina fánastöngina.

Ég veit ekki hvað ég get sagt meira en ég held að mitt point sé komið á framfæri.

P.s. Ég veit að Seven|Jolinn er með rcon.