Sælir kæru BF2 velunnarar!

Já þetta EA games message endalaust, nú þar sem BTnet er búið að uppfæra serverana sína (loksins) og maður er að komast í BF2 stemmara og ég ætla að connecta minn server (e-h af BTnet serverunum) ég hef stuð við forritið ASE (All seeing Eye) þegar ég fer inn á servera en þegar ég er að connecta þá er ég bara settur inn í BF2 Menu-ið og þar býðst mér að lesa þetta langþreytta “EA games message”. Ok allt í lagi með það ég get s.s. connectað í gegnum sjálfan leikinn hugsa ég með mér, searcha “BTnet”, “#BTnet.is” og ég veit ekki hvað, allan fjandann, geri connect to ip (rétta ip-tölu búinn að grandskoða hana) en ekkert gengur. Finn ekki einn BTnet server og já ég er búinn að uppfæra í 1.03. Ég finn aftur á móti 89th serverinn!

Ég var að velta fyrir mér hvort þið kynnuð lausn á þessu vandamáli, best væri náttúrulega ef þið kynnuð að láta þetta EA message ekki poppa upp endalaust, það mætti halda að þeir álitu mann tregan því þetta kemur í hvert einasta sinn sem startað er leiknum!

Takk fyrir mig,
garrus