Ég lennti í vanda þegar ég installaði patch 1.03, þá fékk ég patching failed eins og svo margir kannast við, ok ég installaði þá patchinu í gegnum cmd og virtist það ganga mjög vel. Síðan þegar starta átti leiknum kom upp splash screen í svona 5 sek og ég datt niður á desktop….huh

Ég var búinn að prófa allar leiðir og Googla þetta fram og til baka og til baka og fram og ekkert gekk.

Þangað til!!

Ég installaði patchina í gegnum cmd eftir reinstall á leiknum og var þetta í seinasta skiptið sem ég ætlaði að installa honum, var mikið að spá í að byrja bara aftur í cs, en viti menn það fannst lausn….

Eftir að ég installaði patchinu í gegnum cmd, fór btw eftir einhverjum leiðbeiningum sem eru hérna á huga, prófaði ég að installa patchinu í windows líka og þá kom patching failed eins og alltaf EN leikurinn virkaði eftir það. Og þessi lausn virkaði líka hjá bróðir mínum, þannig að þið sem eruð í vanda og eruð farnir að hengja upp kaðalinn, prófið þetta áður en þið stökkvið af stólnum.

sem sagt, installa í gegnum cmd, loka síðan öllu og installa patchinu normal og fá upp patching failed villuna og volla leikurinn virkar.