Ég hélt nú að númer eitt, tvö eða þrjú hjá Dice væri að laga patch 1.03 þannig að maður gæti installað honum án þess að hugsa mikið út í það. En neeeei, maður þarf að gera það manual eins og með hinn patchinn. Vona að þetta verði eini gallinn sem varð eftir í patchinum.

Varð bara að lýsa yfir pirring mínum á þessu. En best að drífa sig að hand installa elskunni.

Geri ráð fyrir að það séu fleiri þarna úti sem eiga eftir að lenda í þessu eins og síðast. Þannig að ég ætla bara að leyfa mér að skella inn leiðbeiningum sem einhver snillingur gerði. Ég veit að þær virkuðu hjá mér út af þessu síðast.