Þar sem ég er bæði stofandi og stjórnadi BaD clansins, vill ég nota tækifærið og biðjast afsökunar bæði fyrir hönd mína og clansins, fyrir ósæmilega hegðun og slæm comment hér á spjallinu… Svona hlutir eiga að sjálfsögðu ekki að viðgangst og fór ég aðeins fram úr sjálfum mér en vill biðja þá sem hlutu skaða af afsökunar. Hvað point farming hlutann varðar, jú mistök voru gerð og ekkert bakkað með það. Það er enginn leið að réttlæta þann hluta stiga sem illa voru fengin með hnífa killum og fíflaskap, en það er búið og gert og við leggjum hart að okkur til að reyna að bæta upp fyrir þau mistök og sjá til þess að þau munu ekki endurtaka sig í framtíðinni. Enn og aftur vill ég koma afsökunarbeiðni minni á framfæri og vonast til að flestir ykkar sjáið ykkur fært um að taka BaD clanið í sátt.

Smá kynning:
Við hjá BaD erum búnir að vera starfandi í rúmlega 2 ár, og flestir ykkar kannast eflaust við nafnið eða þekkið einhvern sem spilar með því. Við höfum lítið sem ekkert sést á yfirborði BF heimsins hérna á klaknaum enda vorum við að spila Mod sem kallast Desert Combat. Sem er töluvert líkt í uppbyggingu og BF 2, hvað nútíma tækni á hernaði varðar.
Við höfum spilað ca. 50 leiki á clanbase og náðum best 9 sæti af 300 skráðum clönum á sínum tíma, en við viljum gera betur og setjum stefnuna hærra þetta árið.