Sko málið er það að ég er svoddan byrjandi í þessum leikjamálum að ég kemst ekki inná íslenska servera.

Alltaf þegar ég leita að einhverjum af þessum serverum þá finnst aldrei neitt.

Líka ef ég skrifa bara IP-töluna þá virkar það ekki heldur því að það kemur alltaf að ég hafi slegið inn vitlaust lykilorð.

Þó að ég sé svosem alveg sáttur við að vera bara á útlenskum serverum þá er sá galli á gjöf Njarðar að ég er ekki með ótakmarkað útlandaniðurhal, þannig að það væri gott að geta komist inná þessa servera.

Með von um að einhver geti hjálpað,
freako