Ég veit að þetta team-kill dæmi hefur verið þvertekið fyrir. En hvað í ósköpunum gengur á ?

Ég var að spila á public. Tek mér bíl og viti menn. Einhver byrjar að skjóta á bílinn. Ég fer út í byssuna og sé að þetta er minn eigin liðsmaður. Hann er bara að drita á bílinn með m4 og ég beið bara eftir að hann fattaði “nei heyrðu ! Þetta er líka kani” Nei nei nei nei nei. Hann er örugglega kominn á annað hylkið þegar hann fer að kasta handsprengjum í mig… Ég náttúrulega dey og punisha bara.

Nokkrum mínútum seinna gerist nákvæmlega sami hluturinn. Nema bara annar maður úr sama clani. Ég var að á röltinu þarna. Enginn óvinur í marga kílómetra fjarlægð. Og viti menn. Hann fer að skjóta á mig ! Jeij og jeij ! Þá er það alveg öruggt. Menn eru fífl. Ekki að einhver láti arty nálægt manni, ekki að einhver keyri óvart á mann eða skjóta óvart sprengju nálægt manni. Neiii. Menn eru einfaldlega að leika sér að þessu og neignn gerir neitt í því. Þetta sýnir enn og aftur hversu frábærir sumir einstaklingar á þessu landi eru.

Takk fyrir mig. Þetta var gott vöku nöldur.
Skrifaðu með andlitinu, fáviti.