Sælir! (spilarar, svo ég móðgi ekki dömurnar)

Ég tengist netinu í gegnum proxy server háskóla íslands, vegna þess þá nær leikurinn ekki í rankið mitt í BFHQ og því er ég skráður þar með 0 stig, ég ætti í raun að vera kominn með 2 vopn sem hægt er að unlocka, en vegna þessa galla í leiknum er ég ekki með neitt. Augljóslega er þetta leiðinda mál enda tel ég mig vera búinn að vinna mér inn þessum bónus.
Ef einhver er með lausn þá væri það frábært.

p.s. það skal tekið fram að ég hef emailað eagames vegana þessa en ekki fengið nein svör einungis bent á einhvera imbahjálp sem þeir eru með á netinu en hún veitir engin svör við þessu.