ég á í töluverðu veseni með að tengjast server. Þannig er að ég þurfti að setja inn patch sem ég og gerði. Hins vegar com error í honum. Fékk ég þá upplýsingar um hvernig setja ætti hann inn þ.e. byrja uppsetninguna og fara svo í temp folder og keyra patch.exe “slóð að bf2” þetta gerði ég og tók það óratíma. Fer svo í leikinn og finn mér server. Ef ég smelli á “join server” gerist ekki neitt multyplayer síðan kemur bara upp aftur og líka ef ég er í BFHQ og vel play now leitar hún í u.þ.b mínútu og fer aftur í BFHQ. Hvað gæti verið að valda þessu???
Er með tölvu sem ræður vel við leikinn því ég er búinn að spila hann slatta í single player. Er með Speedtouch router 570