Ok, ég er commander. Það fer vinur á APC inn á óvinabeis. Ég gef UAV á beisið. Það er einn special ops þar, og liðsfélagi minn er (áður en UAV mætur á svæðið) með hann pinnaðan niður fyrir aftan gám. Þrátt fyrir það, að UAV-ið gefi klárlega til kynna að það sé einn, og aðeins einn óvinur á beisinu, þrátt fyrir það að hann viti nákvæmlega hvar hann er (!) þá nær þessi blessaði liðsfélagi minn að HORFA EITTHVAÐ ANNAÐ OG LÁTA GAURINN LÆÐAST AFTAN AÐ SÉR OG BOMBA SIG Í KLESSU!? HVERNIG ER ÞETTA HÆGT?

Nei, en svona í fúlustu. Ég tel mig vera ágætlega góðan í BF2, kannski einhversstaðar rétt yfir meðallagi. Er virkilega svona mikill munur á mér og mínum líkum annars vegar og þeim sem eru bara hreinlega lélegir í leiknum?