Var að kaupa mér battlefield (erum 2 félagar) og við instölluðum honum báðir og allt gekk í sómanum, svo þegar við reyndum að spila hann á ísl. serverum kemur loading endalaust og ekkert gengur, okei.. við gátum samt spilað á einhverjum erlendum serverum en eins og sumir vita er það ekkert of gaman.
Svo sóttum við patchinn en þegar við reynum að installa honum kemur patching failed, við lásum korka hér og breyttum account name svo hann innihéldi ekki neina íslenska stafi en samt gerist þetta aftur (þ.e.a.s. patching failed)?

Endilega, einhver sem veit þetta?
(Og við erum búnir að leita hér að þessu og finnum ekkert og því skrifuðum við þetta, ekki því við nenntum ekki að leita)