Sko til að byrja með hélt ég alltaf að þetta væri þroskaður spilari með öll þessi stig og allt það, en mér til mikillar vonbrigðar er hann það EKKI!
Það geta allir haft sína slæmu daga en aldrei myndi ég nokkurn tíma gera það sem hann gerði við mig núna áðan, ég spawnaði á flugvelli og ætlaði mér að krækja í rellu, þar var siggi_litli að bíða einnig. Við biðum þarna saman og það leyndi sér ekki að við vildum báðir sömu flugvélina. Í stað þess að taka því að hann hafði fengið samkeppni um vélina þá skaut hann mig með pistol. Ekki nóg með það þegar ég spawnaði hljóp ég á flugvöllinn og náði rellunni, þá hljóp hann fyrir mig og punishaði, að sjálfsögðu.