2 spurningar og einn kjánalegur draumur.

1. Veit einhver hvurnær næsti skjálfti mun eiga sér stað?

2. Hvaða klön ætla sér að mæta með fullt lið? (Geri fastlega ráð fyrir því að BF2 verði keppnisgrein)

3. Mig dreymdi að ég væri að mæta á skjálfta og eitthvað. Geðveikt spenntur, allir úr SeveN mættir og eitthvað (nema Villi… ekki spyrja mig, mig dreymdi þetta bara). Nema svo mæti ég á staðinn, og þá geri ég mér grein fyrir því að skjálftinn er bara haldinn í einhverjum tveimur, gömlum tréhúsum útí Vestmannaeyjum. Hversu kjánalegt er það?

Held að ég dragi úr öllum samskiptum við Sigga og Stjána upp frá þessu.