Ég er með 2 spurningar hérna sem mér þætti vænt um að einhver sem hefur vit á þessu svari…

1. (Ég veit að þessi spurning kemur þessu áhugamáli ekki við) en þar sem nokkrir af ykkur eru á kafi í tölvumálum þá langar mig að spyrja ykkur hvort það sé sniðugt að kaupa sér flatann skjá? Ég veit að flestir flatir skjáir komast bara upp í 1280x1024 í upplausn að ég held, en þar sem ég er að spila bf2 í 1024x960 þá þarf ég ekki betra en svo veit maður náttúrulega ekki hvort maður fái sér betra dót í tölvuna svo að maður getur spilað með hærri upplausn, en hingað til hef ég ekki þurft þess, þannig spurningin er hvort það sé ekki bara sniðugt að fá sér góðann flatann skjá, er núna með algeran 19'' hlunk sem kemst varla fyrir á borðinu

2. Hvaða byssu mælið þið með að maður unlocki sér. Er unlock byssan hjá assault með sprengjuvörpu eins og venjulega?