Er að reyna setja upp nýja plásturinn hjá félaga mínum, en alltaf þegar ég keyri installið, fæ ég villuskilaboðin: Patching failed

Mjög hress, þetta segir mér mjög mikið … ég hef prófað að uninstalla bf, og reyna patcha aftur, en það virkar ekki. Þetta gerist um leið og forritið reynir að patcha, s.s. ekki komið neitt áleiðis.

Var bara að velta fyrir mér hvort einhver hefði hugmynd um hvað þetta gæti verið, því ekki segja villuskilaboðin mér neitt :/