Hefur e-h hérna lent í því að nametagin fyrir ofan teammemberana ykkar sé hreinlega rauður (eins og hjá óvininum)?
Mér finnst eins og ég hafi stundum séð þetta á gaurum í fjarska, að þeir væru með rauðann texta samt litu þeir út eins og liðið mitt.
En núna nýlega kom það fyrir að það var einn sem stóð hreinlega beint fyrir framan mig. Ég virti hann vel fyrir mér og hugsaði hvort ég væri nú örugglega ekki kanski bara í hinu liðinu… síðan skaut ég hann.
Júbb auðvitað fékk ég Teamkill (revivaði hann þó aftur) og síðan bölvaði þessi gaur mér á chatinu og þar var textinn hans líka rauður…

Það væri gaman að vita hvort e-h annar hafi orðið var við þetta því ef svo er að þá er þetta líklegast vandræðalegasta böggið af þeim öllum. (er með patch 1.02(eða hvað svo sem í andskotanum það er))