Hér er stutt og fræðandi saga….

Var í góðum fíling inn á server og var að spila sem sniper, nokkuð sem ég geri ekki oft en það er annað mál. Mér datt sú skemmtilega hugmynd í hug að setja nokkrar anti personal mines(já þær drepa þegar stigið er á þær) niður á góðum stað þar sem líklegt væri að einhver fjandmaður myndi stíga á hana og hljóta snöggan dauða. Ég fer svo bara að skjóta á einhverja með riflinum mínum góða. Var búin að drepa einhverja tvo og var að skjóta á þriðja. Þegar ég er að er að brenna á hann sé ég allt í einu að ég á að hafa teamkillað 3-4. Mér bregður svo að óvinur minn nær yfirhöndini og ég drepst. Auðvitað fæ ég punish og fæ þar að leyðandi -11 í score. Ég hef spilað battlefield seríuna lengi og séð ýmislegt en ég held að ég hafi ekki einu sinni snappað svona rosalega á puplic eða í match.

Boðskapur sögunar er að farið varlega í kringum sprengi efni liðsfélagana ykkar og verið með augun stöðugt opin við litlum húskúpu merkjum bæði á vinstri hliðini sem og á jörðini, veggnum, trénu og fleiru hvort sem það er anti personal mines, anti armor mines eða C4

Takk fyrir lesturinn