Ath. Viðkomandi einstaklingur er u.þ.b. pirraðri en allt í heiminum þegar þessi korkur er ritaður, og vill biðja lesendur að taka tillits til þess áður en lengra er haldið.

Ok. Núna ætla ég að mála fyrir ykkur litla mynd. Zatar Wetlands (megi það map brenna í víti). Allies. F-35. Ég er ekki að gera neinar gloríur í fyrra roundinu sem inf. (kemur kannski ekki á óvart, enda mappið hannað til þess að einn infantry hitti helst engann annan óvinainfantry út allt mappið) og ákveð því að slaka aðeins á, taka létta flugferð og fragga smávegins. Ok, allt byrjar sæmilega, tek einhverja aumingjans sál út á APC og gæfan blasir mér við. Svo byrjar einhver að locka á mig, en ég læt það ekki á mig fá, sný á durginn og er innan skamms kominn fyrir aftan Mig-29 vélina hans. Ég næ locki, hann tæmir blysin sín og ég skýt þremur eldflaugum til að vera nú viss um að hann eigi ekki afturkvæmt. Engin þeirra hittir, þrátt fyrir það að viðkomandi sé ekki að taka neinar krappar beygjur. Ég furða mig á þessu en sný aftur að flugvelllinum til að restocka mig á ammo. Ég er þó ekki fyrr búinn að taka beygjuna í átt að flugvellinum en eldflaugarnar mínar negla niður vinaþyrlu með 4-5 gaurum inní. Punishin byrja auðvitað að hrúgast inn og ég er kominn með -20 stig. Ég er ekki ánægður, en ákveð að halda áfram engu að síður. Næ í ammo og kemst aftur fyrir aftan óvinaflugvélina. Ég locka, bíð, skýt og viti menn! Eldflaugarnar sýna ekki hina minnstu viðleitni til að elta óvinaflugvélina heldur negla beint á vinaþyrlu sem var þarna einhversstaðar í nágrenninu (og punishin láta auðvitað ekki á sér standa). Ég byrja að gráta en forðast þó að valda neinum varanlegum skaða á tölvunni, aukahlutum hennar eða mínu nánasta nágrenni.

Ég vil því spyrja nokkurra spurninga, til að glöggva mig á því hvað býr að baki þegar svona hlutir eiga sér stað:

1. Af hverju ég?

2. Hverjum datt í hug að búa til map eins og Zatar Wetlands. Ég get svarið það, ef mappið á ekki uppruna sinn í víti (eða Frakklandi) þá skal ég hundur heita.

3. Af hverju elta eltiflaugarnar ekki það tæki sem ég er búinn að locka á, þrátt fyrir að það sé ekki að taka krappar beygjur, og sé ekki með blysin tiltæk?

4. Af hverju í ósköpunum eru allir svona ákafir við að punisha, þrátt fyrir að teamkillið (eða killin, í þessu tilviki) séu engan veginn og á engan hugsanlegan máta, viljandi? Það er greinilega einhver óútskýranleg reiði sem kraumar innra með stórum hluta BF samfélagsins, og gott væri að tjúna aðeins niður. Kaupið ykkur boxpúða, lemjiði kodda eða sparkið í köttinn ykkar, en geriði það (!) ekki láta reiði ykkar (og kjánaskap) bitna á þeim sem ekki eiga það skilið.

Vá. Mér líður betur núna.