Í sambandi medalíur er ekki hægt að fá einhverja medalíu fyrir að nota sprengjuvörpuna (M203/GP30/GP25)?

Vinur minn hefur fengið hana bara fyrir að drepa 3 óvini, en ég drap örugglega svona 7 í einni lotu (var skotinn eftir nánast hvert dráp) og fékk ekki neitt. Svo reyndi ég að drepa 3 á einu lífi eins og hann hafði sagt mér, ég gerði það, tók 3 í einu skoti, en fékk ekki neitt.

Hvernig fær maður hana?

Þessi medalía er reyndar svona merki en ekki medalía.

Já og eitt enn, hvernig fær maður hinar medalíurnar fyrir utan að hafa lent í 1,2 eða 3 sæti á topplistanum?