Jæja ég held að þetta sé síðasti leikurinn frá EA games sem ég kaupi. Ég er alveg búin að gefast upp á þeim.

Ég verð bara að segja hvernig getur tölvuleikja fyrirtæki búið til svona frábæra leiki og klúðrað þeim svo í network connection/join server tengi vélinni!

Það tekur mann 5-6 mínútur að finna servera sem virka með góðu pingi og maður þarf að horfa í lista yfir 100+ servera sem svara ekki pingi og svo er ekki hægt að setja servera í favorites!

Þetta var alveg eins með C&C Generals, lobbýið vara svo lélegt að maður hætti að spila leikinn online því að það tók lengri tíma að finna leik heldur en að spila hann.