Ég held að ég sé að tala fyrir hönd allra BF spilara á landinu núna. Vinsamlegast hættið að væla hérna á huga um hvort einhver sé að trufla scrimmin ykkar, hvort einhver sé að nicksteala ykkur, hvort einhver sé að gera grín af ykkur o.s.frv.
Ég er orðinn hundleiður á því að lesa korka og væl um ekki neitt.
Þið eruð ekki úrhrök BF heimsins eins og þið eruð alltaf að halda fram, menn hafa einfaldlega gaman af því að æsa ykkur upp vegna þess að þið gangið alltaf beint í gildruna.
Reynið nú að róa þetta sjúklega hormónaflæði sem virðist streyma um líkama ykkar :)
En allavega vinsamlegast reynið að vinna úr þessum málum á einhverjum stað en huga.is.
The infamous