Í ljósi mikilla átaka og erja innan BF samfélagsins upp á síðkastið hef ég ákveðið að stofna nokkurs konar hjónabandsráðgjöf til handa hverjum þeim klönum sem standa í meiriháttar erjum hverju sinni. Sjálfur hef ég nú gengið í gegnum minn skerf af klana-leiðindum og er því öllum hnútum kunnugur hvað þetta mál varðar. Mér til halds og trausts verður væntanlega góðvinur minn Árni Stefán (aka Daninn aka Kim Larsen) sem er ekki síðri mér þegar kemur að reynslu í þessum málum, enda lífsreyndur og bráðgáfaður pilturinn. Þjónustan verður, a.m.k. fyrst um sinn, innt af hendi endurgjaldslaust.

Viðtalstímar verða virka daga frá klukkan 9 til 5, en þó ætlum við að hafa lokað yfir hátíðirnar. Hægt er að komast í samband við okkur með pm hér á huga, á ircinu eða með því að senda okkur emil.