Veit þetta er nokkuð tilgangslaust en mig langar svona aðalega bara þakka fyrir mig og svona.. Eins og þið hafið kannski séð þá hef ég verið frekar inactive síðustu mánuði og hef litið sem ekkert spilað frá því dak hætti.

En ég hef spilað BF frá því demoið kom út og hefur þessi tími verið alveg dásamlegur maður hefur kynnst alveg ótrúlega mörgum spilurum á þessum árum og mörgum af þeim hefur maður verið að hitta til dæmis í partýum og slíku. ;)

Allt tekur sinn enda einhverntímann.. svo ég segi bara nú að ég Konig/Günther er hér með hættur að spila BF1942 og ég þakka öllum BF spilurum fyrir frábært tímabil.

Ég vill sérstaklega þakka eftirfarandi spilurum sem hafa spilað með mér í gegnum tíðina og spila en af fullum krafti þeir eru:

Iceberg
Rikki
Shaguar
Kriegherr
Jolinn
Zl1Rc
Mr.G


Eftirfarandi clön sem ég hef verið í eru:

[IN[Gen]Konig
[EASY-SGT]Konig
[FUBAR] Konig
[DAK-Stz]Günther

Takk fyrir mig og gangi ykkur vel á vígvellinum!
Óskarsson.