Sælir strákar

Eins og sumir hafa kannski tekið eftir þá er okkar fyrsti leikur “hugsanlega” á miðvikudag við Svíþjóð í Wake Island. Það er vitað fyrir þennan leik að það verður við ramman reip að draga svo við verðum að hittast og reyna samstilla plön og gera okkar besta til að stríða og jafnvel vinna þá.

Það er því æfing á Sunnudag kl 20 og vonandi sem flestir sjái sér fært um að mæta. Server er ennþá óákveðin en ég á eftir að tala við öðlinganna í Fubar um að nota þeirra. Ég bíst við að það standi.

Eins og sumir hafa líka tekið eftir er að nokkrir hafa sagt sig úr liðinu vegna anna eða annarra orsaka og því hafa fleiri verið teknir inn.

Þeir sem hafa tekið sig út úr liðinu eru :

Yankee
Crutic
Goofish

og þeir sem ég hef valið í staðin eru

The Titan
Satan
Baldrick
Vasquez

Það er nokkuð víst að fleiri munu bætast í hópinn með tímanum og verða þeir látnir vita. Ég hef ákveðið að stækka hópinn í 30 menn s.s. 5 manna stækkun og verða þeir látnir vita fljótlega.
Kveðja Kristján - ice.Alfa