Eins og margir hafa kannski tekið eftir þá hafa margir hætt í liði CP upp á síðkastið annaðhvort farið í önnur lið eða hætt að spila leikinn yfirleitt. CP er ennþá aktív í 2 deildum í evrópu, þ.e bæði Clanbase þar sem við erum í 10 sæti sem stendur og erum að hefja leik í 3 Deild Up North, eftir frekar auðveldan sigur í 4 deild þar sem öll liðin byrja.

Fyrir okkur er það mikilvægast og skemmtilegast að keppa/skrimma á alþjóðavísu, eitthvað sem það virðist bara 2 lið á landinu gera sem stendur (CP og Fubar). Við höfum gert mikið að því og þar af leiðandi safnast ómetanlega reynsla í liðið. Ef þú hefur áhuga að spila þennan leik á þann hátt sem hann er skemmtilegastur þ.e. skrimma, sendu þá okkur umsókn eða mér private message á foruminu okkar.

Ég vill taka það framm að það er 16 ára aldurstakmark í liðið sem við höldum nokkuð fast í, einnig þá viljum við BARA reynda góða spilara.
Kveðja Kristján - ice.Alfa