Ég var að pæla… Er alls kostar ómögulegt að halda bæði ‘42 keppni og Vietnam keppni á næsta skjálfta? Það væru varla fleiri en þrjú lið (DEM, Apoc og 7k$M) sem myndu mæta til að spila Vietnam (alla vega á næsta skjálfta), og fjögur í allra mesta lagi. Ef byrjað væri að spila Vietnam á föstudeginum og leikskipulag fyrir ’42 væri það sama og núna, þá ætti að vera hægt að raða þessu niður þannig að báðar keppnir komist fyrir, jafnvel þótt einhverjir séu að taka þátt í báðum greinum.