Þeir í BTnet eru um þessar mundir að bjóða upp á leikjaþjóna fyrir Battlefield 1942 og Battlefield Vietnam. Þeir báðu mig um að sjá um þessa servera og sjá til þess að þeir séu í gangi.

Vegna þess að BFV serverar eru að skornum skammti á landinu um þessar mundir tóku BTnets menn til hendinni og bjóða núna upp á 32 manna server fyrir BFV. Eins og er, er serverinn lykilorðslaus en það mun væntanlega breytast eftir því sem fleiri mæta á hann, til að halda útlendingunum úti.

Vélin er að gerðinni Medion P4 2.6gz með 512mb í minni svo hún ætti að höndla þetta vel. Ég vona að það verði vel tekið í þetta framtak BTnets manna svo vélin verði sem lengst uppi en ekki notuð í eitthvað annað. Njótið vel.

ATH! ég er starfsmaður launum hjá BTnet, heldur einungis að reyna lengja líftímann og fjölbreytileikann í þessum frábæra leik.
<br><br>IG4U | DEAD MAN WALKING
————————————-
<font color=“#0000FF”><b><a href="http://www.ig4u-gaming.com“>IG4U síðan</a></b></font>
————————————-
<font color=”#FF0000“>IG4U Spilar á vélum frá <b><a href=”http://www.fabrik.is">Fabrik</a></b></font>
————————————-
Kveðja Kristján - ice.Alfa