Hó,

Ég var að setja upp nýjan Simnet server til prufu sem mun leysa núverandi BF1942 server a hólmi ef allt gengur að óskum. Serverinn er á 194.105.226.135:14567

Serverinn keyrir á HP server með tveimur P4 XEON 2.8 GHz örgjörvum, 1 GB minni, tveimur (striped/RAID 0) 36GB SCSI-3 diskum og tveimur 1000 Mbps netkortum. Ekki skiptir minna máli að hann keyrir á Linux, en gamli á Win2k Advanced Server.

Fjölmennið endilega þarna! Það er must að fá smá benchmark prófun á hann. :)

Ekkert lykilorð þarf til að spila á honum (til að byrja með a.m.k.)

ps. einnig er kominn upp BF Vietnam þjónn á 194.105.226.135:15567 - leikurinn ætti að koma í búðir á mánudag, ef mér skjátlast ekki.