Ég er í stórum vandræðum með Forgotten hope og var að velta fyrir mér hvort einhver snillinn hér hefði lent ísvipuðu og reddað málinu.

Þannig er að ef ég ræsi FH og reyni svo að spila krassar leikurinn alltaf og dettur út. Alveg sama hvort ég reyni að spila single player eða tengjast á netinu. Þetta byrjar allt voða vel mappið byrjar að hlaðast inn en um leið og það virðist vera komið inn krassar allt. Ég prófaði að patcha leikin með nýjasta pathcinum en það dugði ekki til :-(
Endilega komið með einhverjar hugmyndir að lausnum mig langar tila að prófa FH.
Bestu kveðjur Kitty