Hringiðan og 89th hafa í sameiningu opnað öflugan BF1942 server sem verður opinn almenningi allan sólarhringinn nema þegar keppnir á vegum 89th standa yfir.
Serverinn er á frábærri tengingu hjá Hringiðunni og er P4 2,8Ghz og er með 1GB DDR RAM og 3COM netkorti.
Ekkert annað en BF serverinn er í gangi á leikjaþjóninum og vonumst við til að geta boðið uppá “laggfría” spilun.
Við kunnum hringiðunni bestu þakkir og hvetjum fólk til að hópast þangað í viðskipti !
Njótið vel.
Passinn er: hringidan