Sko, hvað er eiginlega í gangi hérna? Allir fúlir út í alla og allir drullandi yfir alla.

Man einhver hvað upphaflega bitbeinið var í þessum sjóðheitu korkum hérna fyrir neðan? Man einhver um hvað rifrildið snýst?
Mér sýnist allir vera búnir að ákveða það að með skít skal skít svara, og þar af leiðandi fara allar rökræður út í rugl um það hver reið mömmu hvers og hver sé mongólíti.

Nú legg ég til að við hættum þessu rugli! Látum þetta ekki breytast í CS. Þeir sem hafa eitthvað á móti tilteknum korkum skulu bara gera sitt besta til að leiða þá hjá sér, nú eða reyna að svara þeim á sem málefnalegastan og kurteisastan hátt.

PS: Jújú, ég veit að ég er enginn engill, en þetta er nú komið fram yfir öll mörk.

Zedlic