Pff… ég var að spila DC í ágætis fíling en óvart fretaði ég á einn náunga að nafni “DRULLU CRAZY” sem var í þyrlu og gekk svo langt að tæta hann líka þegar hann stökk út í fallhlíf. Ég var svo viss um að etta var óvinur :/
Strax eftir þetta lætur hann vel valin orð um mig falla og kickar mér undireins, þá meina ég strax, áður en ég get sagt “sry” eða eitthvað þessháttar.
Ég spyr bara: Hvað eru svona þursar að gera með rcon…? þetta er nú bara leikur þannig að ástæðulaust að bilast svona sérstaklega á public.
Ég er nú nokkuð viss um að þetta var einhver stórkall að altnicka þannig að mér þætti vænt um að hann svaraði mér hérna ef hann sækir huga.is

P.S. Mér þykir þetta leitt með svona TK af verstu gráðu, en svei þér fyrir svona viðbrögð

Kv. Tupolev
______________________