jæja, ég er nýkominn úr Skífuni með spánýjann Battlefield Secret Weapons of WWII leik. Ég set hann í drifið og ætla að installa leiknum. En þegar ég íti á next og setupið ætlar að spyrja um CD key þá krassar allt. það kemur upp melding sem segir CDKey has encountered a problem and needs to close. We are sorry for the inconvenience. Möguleikarnir sem koma eru send error report og Don´t send. Þetta er hefðbundin Windows XP villumelding sem margir kannast við. Ég var að vellta því fyrir mér hvað þetta gæti verið. en svo þegar ég gái nánar þá er ég ekki einn um þetta. Margir aðrir hafa lennt í því sama á þessari nýjustu viðbót við Battlefield. Hefur einhver ykkar lennt í þessu? hefur einhver ykkar leyst þennan vanda? ef svo er, endilega komið með lausnina.

Takk fyrir mig
Varist að hafa orðið “vefstjóri” í undirskrift því þá tekur *vefstjóri það út! :) Vinsamlegast hafið ekki fleiri en 4 línur í undirskrift.