Miðað við atburði dagsins þá get ég ímyndað mér það, að óbundnir endar gætu fundist hér og þar. Ég vil því pósta þennan póst, að hluta til til þess að öðlast einhvurja innri sálarró (og fengið sæmilegan nætursvefn) en einnig til að friðmælast við þá sem hugsanlega fengu minni hlutann af kökunni í samskiptum mínum við þá, bæði hér á huga og inni á public. Ég vill ykkur allt hið besta og ef ég hef gert eitthvað sem fékk á ykkur (þeir taka það til sín sem eiga) þá biðst ég afsökunnar. Að sama skapi vil ég láta ykkur vita að ég er ekki í fýlu út í neinn ykkar, ef þið á einhvurn hátt lásuð það út úr skrifum mínum hér á huga í dag.

Nú þegar það er komið á hreint þá get ég loks farið að lúlla og haldið svo áfram að spila um leið og færi gefst.

*Disclaimer*: Svefngalsi, en þó ekki svo mikill að ég meini ekki það sem ég segi/skrifa.

P.S. Það er fremur erfitt að snipe-a þegar ég lagga eins og blaut tuska… I never thought I'd say this in public but… MIG LANGAR Í SIMNET AFTUR!!!<br><br>[I'm]Jolinn

I wouldn't venture out there, fellas. This sniper's got talent!